Kaffibrennsla Kaffismiðju Íslands
Brennslumeistarar Kaffismiðjunnar, Imma og Sonja, sjá til þess að það sé alltaf til ferskt kaffi fyrir viðskiptavinina. Þær brenna nánast daglega og ef þig vantar kaffi þá er kjörið að líta við seinni part dags og næla þér í ný brennt kaffi. Viti menn kannski hittir svo á að önnur hvor þeirra er að brenna sem er skemmtilegt að sjá.
Kaffismiðjan verslar einungis sælkera kaffi eða speciality coffee. Það kaffi er í háum gæðaflokki.
Kaffibaunirnar er hægt að fá í ómalaðar í 300g pokum en við getum einnig malað fyrir þig og kaffivélina þína.
Kaffið okkar
Selebes KalossiFrá eyjunni Sulawesi í Indónesíu Brennt að seinna poppi sem hentar jafn vel í expressó vélar, rafmagns og á hellu. Bragðið leikur við tungu þína og skilur hana heftir með silkimjúka tilfinningu. Verð: 300gr poki kostar 800 kr. |
Brasilía Daterra Bourbon yellowwww.daterracoffee.comDaterra er kaffi co-op eins og það er kallað. Það er eins og kaffi kaupfélag. Það samanstendur af rúmlega 200 kaffibúgörðum. Bourbon er afbrigðið af kaffitrénu og kaffiberin eru gul. Verð: 300gr poki kostar 1000 kr. |
Kólumbía La PrimaveraFrá Maríu del Rosario í Huila héraði.Nýjasta viðbótin í Kaffismiðjunni er þetta fágaða kaffi frá Huila héraði í Kólumbíu. Eins og kaffið frá vini okkar Javier, þá hefur kaffið frá Mariu tekið þátt í Cup of Exellence keppninni. Gæða kaffi frá henni Mariu del Rosario. Hentar vel í allar uppáhellingar, með mjólk eða svart. |
Kólumbía Bella VistaFrá Javier Sanjuan og fjölskyldu hans í Huila héraði.Javier hefur verið kaffibóndi allt sitt líf og er að reyna byggja börnum sínum fjórum fallega arfleið. Hann hefur sent þrisvar inn kaffi í Cup of Excellence keppnina og þrisvar endað í úrslitum. Þetta kaffi er fyrsta kaffið sem Kaffismiðja Íslands flytur inn og markar þar með kafla í sögu fyrirtækisins. Verð: 300g poki kostar 900kr. |

