Kólumbía Bella Vista

  • Kaffibóndi: Javier Sanjuan Gomez
  • Búgarður: Bella Vista
  • Borg: Pitalito
  • Hérað: Huila
  • Landsvæði búgarðsins: 6 hektarar
  • Landsvæði í kaffiræktun: 3,8 hektarar
  • Afbrigði af kaffitré: 60% Caturra, Colombia 40%
  • Hæð yfir sjávarmáli: 1700m

Verð: 300g poki kostar 900kr.

Javier Sanjuán Gómez, 43 ára kaffibóndi fæddist í Pitalito borg í Hulia Héraði Kólumbíu. M

aria Elcira Galindez Cerón kona hans og börnin, Julian, Gilary, Magali og Maria Paula vinna öll saman á búgarðinum, sem heitir Bella Vista. Búgarðurinn hefur 3 löggildingar varðandi gæði á ræktun, vinnslu á kaffinu og vinnuaðstæður.

Javier er meðlimur í samtökunum “Café Andino” og formaður samtakana “Municipal Committee of Coffee Growers” í Pitalito. Og einnig hefur hann verið liðtækur í þvi að veita upplýsingar um kaffi í gegnum útvarpið á staðnum. Javier hefur þrisvar tekið þátt í Cup of Excellent prógramminu og verið í úrslitum í þeim öllum sem segir mikið til um gæðin á ræktuninni og vinnslunni á kaffibaunum.

Bella Vista búgarðurinn er staðsettur í skógi við rætur “Macizo Colombiano” fjalla þar sem nánast útdauð afbrigði af trjám “Pino Colombiano or Romerón” vaxa. Javier er með falleg göng sem þessi tré mynda og ekki langt frá er vatnsuppspretta “El Encanto” sem er umlokið bambus og þar geta vinir komið saman og spjallað með kaffibolla í hönd.