Kólumbía La Primavera

  • Kaffibóndi: María del Rosario Ariza Coy
  • Búgarður: La Primavera
  • Svæði: Acevedo
  • Hérað: Huila
  • Landsvæði búgarðsins: 1,8 hektara
  • Landsvæði í kaffiræktun: 1,0 hektarar
  • Afbrigði af kaffitré: 100% Caturra
  • Hæð yfir sjávarmáli: 1457m
Hentar vel í allar uppáhellingar, með mjólk eða svart.

Verð: 300gr poki á 1200 kr

María del Rosario Ariza Coy fæddist sem kaffibóndi. Foreldrar hennar voru virtir kaffibændur og þökk sé ræktuninni þá gafst henni tækifæri til að sækja nám. Hún er menntaður endurskoðandi og stolt af því að vera kona í kaffi bransanum.

Hún er virkur meðlimur og stofnfélagi í Samtökum Group San Isidro, í Acevedo svæðinu suður af Huila. Hún hefur notað þekkingu sína í endurskoðun til að hjálpa og kenna öðrum félögum í samtökunum að ná tökum á fjármálum sínum.

María er í sambúð með José Ramón Collazos sem er einnig kaffibændi með sérhæfingu í framleiðslu á gæða kaffi. Hûn hefur tekið þátt í ýmsum keppnum á vegum Cup of Excellence. Þó að hún hafi aldrei náð í uppboðshlutann þá er hún ávallt í úrslitum.