Kaffihúsið

Kaffihúsið er í gömlu steinhúsi á fyrstu hæð með innganga frá Frakkarstíg og Kárastíg. Þegar komið er inn Kárastígs megin þá blasir við kaffibarinn með fallegri La Marzocco expressóvél og tveimur Mazzer kvörnum. Ekki má nú gleyma starfsfólkinu sem stendur á bak við barinn, oftast á fullu að afgreiða eða vinna á vélinni.

Kaffismiðjan skartar gömlum húsgögnum sem gerir það að verkum að okkur lýður eins og við séum komin í kaffi til ömmu. Ekki skemmir það nú að við erum með eina ömmu í vinnu hjá okkur sem gefur unga starfsfólkinu ekkert eftir.

Þegar inn er komið þá tekur fólk vafalaust eftir því að við erum með plötuspilara og stórt safn af plötum til að spila. Því má ekki gleyma að ef þið eigið uppáhalds plötu heima, líklega rykfallna, þá ekki hika við að koma með hana og spila hana fyrir Kaffismiðju gestina.

Þegar litið er bakvið kaffibarinn þá kemur í ljós þetta fína kósý horn, þar sem við geymum hægindastólana og barnahornið. Klósettið er þarna líka og svo hrábauna lagerinn okkar.

Þegar gengið er inn Frakkastígs meginn þá blasir við bleiki brennsluofninn okkar, þar sem við brennum allt okkar dýrindis kaffi. Vinstra megin við hann er svo aðstaða fyrir okkur til að pakka, merkja og mala kaffið okkar. Innan af er svo starfsmanna aðstaðan okkar, vel úti látin... segi ekki meir.

Samtals erum við með 7 borð. En við hvert og eitt eru mismunandi margir stólar. Hjá okkur í Kaffismiðjunni þá sitja allir saman, ef þú finnur lausann stól þá sestu í hann. Aldrei að vita nema þú finnir lífsförunaut þinn með þessum hætti.

Mest er að gera hjá okkur á morgnana og um kaffitímann.

Verðlisti yfir það sem við bjóðum upp á:

Matseðill  Verð
Hafragrautur með sultu 300
Croissant 270
Croissant með osti,sultu og smjöri 400
Croissant með súkkulaði 350
Skonsa 350
Skonsa með osti, sultu og smjöri 450
Matarkistu Hafraklatti 450
Frönsk súkkulaðikaka með valhnetum 600
Súkkulaðimoli 180
 Kaffi, Te og Drykkir Verð
    Lítill Stór
Expressó   270 290
Expressó Macchiato   310 350
Expressó Macchiato í bolla 370    
Kaffibolli með ábót 270    
Americanó   300 330
Cappuccino 370    
Latte 390    
Swiss Mokka 490    
Heitt Súkkulaði 460    
Chai Latte 450    
Te 300    
Kók í flösku 300    
Toppur í flösku 300    
Trópí (epla / appelsínu) 300    
Hámark 350    

Um eigendur kaffismiðjunnar

Kaffismiðjan er lítið fyrirtæki í eigu Sonju Bjarkar Einarsdóttur Grant og Ingibjargar Jónu Sigurðardóttur sem báðar þróuðust sem kaffibarþjónar hjá Kaffitári.

Sonja starfaði sem þjálfari hjá Kaffitári og frá 2000 vann hún að því að setja Íslandsmót og heimsmeistaramót kaffibarþjóna. Sonja er aðlþjóðlegur kaffidómari og ferðast um heiminn að dæma á kaffibarþjónamótum.

Ingibjörg starfaði sem kaffibarþjónn og verslunarstjóri hjá Kaffitári. Ingibjörg keppti í WBC (World barista championship) 2006 í Bern, Swiss og hafnaði í 6. sæti og svo 2007 í Tokyo, Japan og hafnaði í 13. sæti. Þess má geta að til að geta keppt í WBC þá þarftu að skarta Íslandsmeistara titli.