Kaffiskólinn

Skólinn byggist upp af einstaklings-og hópanámskeiðum í að læra á expressóvélina okkar eða heimilisvélina þína, kaffismökkun eða expressó smökkun, læra að freyða mjólk, keppnisþjálfun og kaffifyrilestrar.
Hafðu samband á kaffismidja@gmail.com ef þú vilt fá nánari upplýsingar eða komdu við hjá okkur á Kárastíg 1, 101 Reykjavík.
Fagsmökkun
Byrjað er á því að halda fyrirlestur um uppruna og ræktun kaffisins, tekur 30-40 mín. Svo er haldið í kaffi- eða expressósmökkun sem tekur um klukkustund. Farið er ýtarlega í hvert skref fyrir sig í smökkunarferlinu.
Við reynum að hafa hópanámskeiðin ekki lengur en 2 tíma og komum mest 10 manns að í hvern hóp.
Að læra á expressóvél
Námskeið fyrir kaffibarþjóna sem starfa á kaffihúsum, þar sem þeir fá fyrirlestur um La Marzzoco expressóvélina, læra tæknina að útbúa expressó og freyða mjólk.Farið er ýtarlega í munin á því hvernig handbragðið skilar sér í bragðinu á expressó.
Fyrir kaffibarþjóna er mikilvægt að fara á þetta námskeið, en því er skipt niður í 2-3 hluta.
Við köllum fyrsta skiptið grunnnámskeið og það fer eftir því hvernig kaffibarþjóninum gengur að ná grunnatriðunum hvort hann fer á 2 eða 3 námskeið.
Heimilis expressóvélar
Þetta námskeið er fyrir heimiliskaffibarþjóninn. Þá kemuru með expressóvélina þína og kvörn svo við getum kennt þér það sem uppá vantar.
Keppnisþjálfun
Þjálfun fyrir kaffibarþjónamót, mjólkurlistamót, kaffi í góðum vínanda, fagsmökkun og mót í tyrkneskri uppáhellingu.
